Íspinnamót - hringlótt

Íspinnamót - hringlótt

Verð 8.490 kr
/
  • Frítt á pósthús/póstbox/Dropp afhendingarstað ef verslað er fyrir yfir 15.000kr
  • Umhverfisvænar og vandaðar vörur
  • Á lager
  • Vara á leiðinni
með VSK Sendingarkostnaður reiknast í greiðsluferli

Gerðu þinn eigin frostpinna úr djús, maukuðum ávöxtum/grænmeti, jógúrt eða öðru girnilegu hráefni og þú veist nákvæmlega hvað er í þínum frostpinna. Í pakkanum eru mót fyrir sex frostpinna og 30 bambuspinnar sem má þvo í uppþvottavél og nota aftur og aftur. Gott er að þvo bambuspinnana í höndunum því þá má einnig nota aftur og aftur.
Mótin eru úr ryðfríu stáli sem þýðir að þau eru plastlaus og án skaðlegra efna. 

Auðvelt í notkun, auðvelt í þrifum og með góðri umhirðu gætu mótin enst þér alla ævi. Hannað til að taka einn frostpinna úr í einu eða fyllt einn í einu, eða bara alla í einu því þeir eru svo góðir á bragðið.

Til að losa pinnann úr mótinu er hægt að halda um mótið í skamma stund og látið hitann úr lófanum losa mótið eða skella örsnöggt undir rennandi vatn – það losnar mjög fljótt þannig.

Frostpinnasettið samanstendur af:

  • einum standi
  • sex formum
  • sex lokum
  • 12 silikonhringjum sem halda spýtunum á sínum stað
  • 30 endurnýtanlegum frostpinnaspýtum úr bambus

Notkun og umhirða

  • Hvert mót rúmar 80 ml.
  • Ekki fylla ílátið alveg í top – gott er að skilja eftir 2-3 mm til að gera ráð fyrir þenslu vegna frostsins.
  • Þvoðið í volgu sápuvatni fyrir notkun
  • Má fara í uppþvottavél
  • Geymist á þurrum og köldum stað á milli notkunar.

Ryðfrítt stál ætlað matvælum
Án: BPA, þungmálma og annara innkirtlatruflandi efna.

Framleitt í Kína

FSC umbúðir

This site is protected by hCaptcha and the hCaptcha Privacy Policy and Terms of Service apply.

Meira frá Pulito
Sítruspressa
5.490 kr
Stálklakar
3.690 kr
Klakamót
5.890 kr
Nýlega skoðað