Mild olía sem hreinsar húðina án þess að þurrka hana. Húðin verður mjúk og heldur náttúrulegu rakajafnvægi sínu. Olían er án ilmefna og hentar öllum húðgerðum, einnig þeim allra viðkvæmustu.
Hreinsið húðina að kvöldi. Nuddið olíunni með fingrunum á raka húðina með hringhreyfingu. Þurrkið hana svo af með hreinsisvampi og volgu vatni.
Olía hefur einstaklega djúphreinsandi áhrif á húð og hefur hjálpað mér að ná meira jafnvægi á mína húð. Mér finnst húðin verða hrein, fersk og nærð. Þetta er lykillinn að heilbrigðri húð.
Við mælum einnig með...
Meira frá Organics By Sara
Nýlega skoðað