Vinaskógur - spil
- In stock, ready to ship
-
Frítt á pósthús/póstbox/Dropp afhendingarstað ef verslað er fyrir yfir 20.000kr
Komið í ferðalag um Vinaskóg með forvitnum og skemmtilegum dýrum sem deila með okkur visku sinni. Dragið spil í rólegu og öruggu umhverfi með einhverjum fullorðnum sem þið treystið.
Hvert spil er boð um að tengjast þér og þeim sem eru í kringum þig og læra í leiðinni meira um hvert annað. Í Vinaskógi má alltaf segja pass og draga annað spil. Við keppumst ekki um það að vinna heldur skilja spilin eftir sig eitthvað nýtt í huga og hjarta þeirra sem taka þátt.
Spilin veita tækifæri til dýpri tengsla og samtals í hversdagsleikanum og eru hugsuð sem róleg afþreying án mikils áreitis eða truflunar.
Spilin henta börnum á yngsta stigi grunnskóla en yngri börn geta tekið þátt á sinn hátt með aðstoð frá fullorðnum. Spilið er hannað og sett upp af Huldu Tölgyes sálfræðing - myndskreytt af Unnie Arendrup.
Rykdustari úr strútsfjöðrum - hvítur - 70 cm
ZUMA LEATHER DESERT SAND
Mjög góður og flottur
Virkar mjög vel.
Gives me a smooth shave without irritating
Sjampóduft - rósmarín & koffín