Andlitsolía AZTA GLOW
- In stock, ready to ship
-
Frítt á pósthús/póstbox/Dropp afhendingarstað ef verslað er fyrir yfir 20.000kr
ZAndlitsolían Asta Glow frá íslenska vörumerkinu La Brújería inniheldur blöndu af olíum, ilmkjarnaolíum, kollageni, jurtum og astaxaníth. Markmið andlitsolíunnar er að bæta útlit húðarinnar, gefa raka, draga úr fínum línum og vernda húðina fyrir UVA geislum sólarinnar.
Astaxaníth er öflugt andoxunarefni og gefur olíunni þennan fallega náttúrulega rauða lit sem skilur húðina eftir ljómandi og sólkyssta.
Notkun:
Nuddið 2-3 dropum á hreint andlitið að morgni áður en farði er settur á og á kvöldin fyrir háttinn. Leyfið olíunni að dragast inn í húðina áður en lagst er á koddann svo að liturinn smiti ekki í koddaverið.
ATH náttúrlegi liturinn úr Astaxanthin er sterkur en er fljótur að smjúga inn í húðina og smitar þá ekki í fötin.
Innihald:
Rosa canina, Vitis vinifera, Jojoba, Achillea millefolium, Calendula officinalis, Vegan collagen, Astaxanthin: Ilmkjarnaolíur: Ylang ylang, Frankincense, Cedarwood.
Endurvinnsla:
Aðskiljið glerflöskuna og pípettuna og skilið í endurvinnslutunnu. Einnig má gefa flöskunni nýtt líf á heimilinu og nota hana undir eitthvað annað.
Ég er með brúna húð og húðin í andlitinu á það til að verða þurr, þá sérstaklega í kulda. Þessi olía frískar svo vel upp á andlitið. Ég fékk strax ummæli frá fôlki í kringum mig hvað ég liti fersklega út og eins að èg væri nýkomin frá útlöndum. Það er mild og ótrúlega góð lykt af olíunni. Nota hana með öðrum vörum frá Evolve beauty og það virkar mjög vel :)
Mild og smýgur vel inn. Gefur ljóma og frískt útlit. Mæli með eftir sund.
Svo góð og gefur svo fallegan ljóma 😀
Kom mér svo á óvart. Brá svolítið við appelsínugula litinn sem hverfur síðan og eftir verður ferskur litur sem jafnar út húðlitinn. Þarf ekki lengur litað dagkrem eða meik. Gefur mjög góðan raka og meiri en margar olíur sem ég hef prófað. Takk.
.
Uppáhalds andlitsolían mín! Nota hana kvölds og morgna. Gerir mann ferskan allan ársins hring, húðin verður svo mjúk og fersk og lyktin góð :)
Rykdustari úr strútsfjöðrum - hvítur - 70 cm
ZUMA LEATHER DESERT SAND
Mjög góður og flottur
Virkar mjög vel.
Gives me a smooth shave without irritating
Sjampóduft - rósmarín & koffín