Barnatannbursti úr bambus - mjög mjúkur - rauður
Bambus tannburstarnir frá Hydrophil eru gerðir úr hraðsprottnum, sjálfbærum bambus og hárin eru úr Castor olíu og nylon. Endurvinnanleg efnin sem eru án BPA og 100% vegan gera það að verkum að samviskubitið er mun minna þegar skipta þarf um tannbursta.
Hárin á tannburstanum eru mjög mjúk (e. extra soft) og henta vel barnatönnum.