FLUX túrnærbuxur henta bæði fyrir blæðingar og áreynsluþvagleka. FLUX fyrir miklar blæðingar halda upp í 12 tíma, þær halda sama magni og 4 túrtappar eða um 20 - 25 ml.
Buxurnar eru úr TENCEL modal efni sem er upprunnið og framleitt í Austurríki með umhverfisvænum og sjálfbærum framleiðsluaðferðum sem fela meðal annars í sér endurnýtingu á bæði vatni og hliðarafurðum. Rakadræga efnið er í nokkrum lögum, úr PUL og bómullarefnum. Öll efnin eru OEKO-Tex vottuð.
Breska fyrirtækið FLUX framleiðir túrvörur með ábyrgum hætti fyrir fólk og fyrir umhverfið.
Af hverju FLUX túrnærbuxur?
 – Margnota. Þær koma í stað einnota túrvara s.s. tappa og binda
 – Góðar fyrir budduna til lengri tíma
Efni, umbúðir og framleiðsla
 – Halda samasem 4 túrtöppum / 20 - 25 ml
 – Fást í augnablikinu í stærðum XS - XXL
 –  Efni: Buxurnar eru úr 95% TENCEL modal og 5%Elastane. Blúndukantur úr polyester. Rakadræg lög: blanda af PUL og bómullarefnum, öll efni eru OEKO-Tex vottuð
 – Án ilmefna og parabena
 – Vegan og Cruelty Free
 – Framleiddar í UK (40% framleiðslunnar) og með ábyrgum hætti í Kína (60% framleiðslunnar)
Notkun og umhirða
 – Skolið eftir notkun með köldu, þvoið í þvottavél á 30 - 40°, hengið til þerris
 – Ekki nota mýkingarefni eða þurrkara, það getur skemmt rakadræga lagið
Og þá eru túrnærbuxurnar tilbúnar til notkunar aftur!
 
  
 
  
 
  
 
  
 
  
 
  
 
  
 
  
 
  
 
  
 
  
 
 
 
 
 
  
 
  
 
  
 
  
 
  
 
  
 
  
  
  
 