Damiana (Turnera diffusa) frá íslenska vörumerkinu La Brújería er kynörvandi tinktúra (50 ml).
Mayar og Aztekar notuðu jurtina til að örva kynhvöt en hún er talin örva testósterón framleiðslu í líkamanum og hefur þar með áhrif á orku og kynhvöt.
Jurtin er einnig talin létta lund og auka orku og getur því virkað vel í skammdeginu sem og haft jákvæð áhrif á kvíða og síþreytu.
Jurtin hefur einnig haft góð áhrif á hormónajafnvægi kvenna, ekki síst kvenna á breytingaskeiðinu.
Notkun
1 dropa fyrir 2 kg af þyngd tvisvar á dag samfellt í a.m.k. 3-8 vikur. Eftir það má nota dropana eftir þörfum.