WINTER GLOW DUO - GJAFASETT
- In stock, ready to ship
-
Frítt á pósthús/póstbox/Dropp afhendingarstað ef verslað er fyrir yfir 20.000kr
Winter Glow Duo gjafasettið er algjör lúxus fyrir húðina. Vörurnar koma í glitrandi grænni og gullinni öskju með borða úr endurunnu plasti – tilbúið til gjafa, engin fyrirhöfn! Í öskjunni finnur þú tvær vinsælar vörur frá UpCircle, en í smærri útgáfu:
Peptide Serum (13 ml) og lífræn andlitsolía (10 ml).
Hvort sem þú vilt gleðja vin, vinkonu eða dekra við sjálfa/n þig, þá mun þetta sett án efa slá í gegn. Frábær leið til að fríska upp á vetrarhúðrútínuna með öflugum innihaldsefnum sem unnin eru úr endurnýttum hráefnum (e. *upcycled*).
Peptide Serumið inniheldur meðal annars efni unnin úr kirimojaldini (e. *custard apple*) og níasínamíð. Sýnt hefur verið fram á með klínískum rannsóknum að það eykur teygjanleika húðarinnar um 29% á aðeins 14 dögum, sem gerir húðina þéttari og ljómandi.
Lífræna andlitsolían er 100% náttúruleg og inniheldur kaffi- og rósaberjaolíur sem unnar eru úr hráefnum sem ganga af í matvælaframleiðslu. Hún lokar rakanum inni í húðinni, nærir hana og hjálpar til við að draga úr litabreytingum (dökkum blettum).
Vörurnar eru húðlæknisfræðilega prófaðar, vegan, ekki prófaðar á dýrum og henta öllum húðgerðum. Settið kemur í endurvinnanlegum umbúðum sem hægt er að hengja beint upp á jólatréð.
Notkun:
Peptíð serum:
Settu nokkra dropa á fingurgómana og nuddaðu inn í húðina. Notaðu eftir hreinsun og andlitsvatn, en áður en rakakrem er borið á. Við mælum með því að nota það eftir að hafa úðað andlitsvatni á andlitið til að undirbúa húðina.
Andlitsolía:
Settu nokkra dropa á fingurgómana og Nuddaðu inn í húðina. Berðu á eftir rakakrem eða serum – þar sem varan er 100% olíubundin virkar hún með því að mynda verndandi lag yfir húðina, sem lokar rakanum frá rakakreminu inni.
Innihaldslýsing:
Organic Face Oil: 100% NATURAL INGREDIENTS: Helianthus Annuus Seed Oil*, Carthamus Tinctorius Seed Oil*, Simmondsia Chinensis (Jojoba) Seed Oil*, Coffea Arabica (Coffee) Seed Oil, Hippophae Rhammoides (Sea Buckthorn) Seed Oil*, Rosa Canina (Rosehip) Fruit Oil*, Rubus Idaeus (Raspberry) Seed Oil*, Citrus Aurantium Bergamia (Bergamot) Fruit Oil*, Pelargonium Graveolens (Geranium) Flower Oil*, Citrus Limonum (Lemon) Peel Oil*, Cymbopogon Martinii (Palmarosa) Oil*, Vetiveria Zizanoides (Vetiver) Root Oil*, Rosa Damascena (Rose) Flower Oil*, Calendula Officinalis (Calendula) Flower Extract*, ^Limonene, ^Geraniol, ^Linalool, ^Citronellol, ^Citral, ^Farnesol.
Peptide Face Serum: 93% NATURAL INGREDIENTS: Aqua (Water), Citrus Sinensis (Orange) Fruit Extract, Niacinamide, Pentylene Glycol, Annona Cherimola Fruit Extract, 3-O-Ethyl Ascorbic Acid, Butylene Glycol, Benzyl Alcohol, Diutan Gum,
Ethylhexylglycerin, Sodium Citrate, Potassium Sorbate, Tripeptide-1, Dextran, Phenylpropanol,
Sodium Dehydroacetate, Citric Acid, Tocopherol.
Rykdustari úr strútsfjöðrum - hvítur - 70 cm
ZUMA LEATHER DESERT SAND
Mjög góður og flottur
Virkar mjög vel.
Gives me a smooth shave without irritating
Sjampóduft - rósmarín & koffín