Matarsódi / Bicarbonate of Soda 750 gr
- In stock, ready to ship
-
Frítt á pósthús/póstbox/Dropp afhendingarstað ef verslað er fyrir yfir 20.000kr
Matarsódi sem er samþykkur til matvælanotkunar og hentar til þrifa víðast hvar á heimilinu, verkstæðinu eða garðinum.
Auðveld og ódýr leið til að þrífa heimilið án eiturefna. Matarsódi sem notaður er með öruggum hætti, má nota á fjölmarga vegu sem; alhliða hreinsiefni, kalkhreinsiefni, þvottaefni, mýkingarefni, sem loft- og lyktareyði og annað.
Geymsla.
Haldið fjarri hita og raka
ATHUGIÐ
Geymið þar sem börn ná ekki til
Þrífið ekki ál með matarsóda. (hentar öllum öðrum málmum)
Hentar ekki fyrir silki og ull
Hugmyndir að notkun:
Sem mýkingarefni:
Setjið ¼ glas af matarsóda og ¾ glas af vatni í skolvatnið þvottavélarinnar. Virkar einnig sem lyktareyðandi, skerpir liti í fatnaði og kemur í veg fyrir uppsöfnun kalks.
Sem teppahreinsir:
Á teppi og sofa: stráið matarsóda yfir flötin sem þrífa skal, nuddið í efnið, látið standa í klukkustund og ryksugið síðan. Flöturinn verður hreinni og lyktarlaus.
Almenn þrif
Matarsódi er leystur upp í vatni og notaður til að skúbba og þrífa gólf, salerni og vaska, ofna ofl.
Einnig er hægt að gera þykkt krem úr sódanum með því að blanda vatni saman við og hreinsa króm, ryðfrítt sál, gull og silfur. Berið á, látið liggja á stutta stund, skolið með volgu vatni og pússið með þurrum klút.
Ég einfaldlega ELSKA matarsdóda og hversu fjölhæfur hann er. En einmitt vegna þess að þá er svo frábært að geta keypt hann í stærri pakkningum. Mér finnst best að nota hann î hreinsun á ávöxtum, þvottavélina, uppþvottavélina, ofnhreinsi og til þess að fjarlægja lykt 💯 Mæli algjörlega með!
Rykdustari úr strútsfjöðrum - hvítur - 70 cm
ZUMA LEATHER DESERT SAND
Mjög góður og flottur
Virkar mjög vel.
Gives me a smooth shave without irritating
Sjampóduft - rósmarín & koffín