Sara Rós er stofnandi vörumerkisins  Lífsstefna. Hún á tvo stráka sem eru fæddir árið 2006 og 2013, hún er menntaður félagsliði, auk þess að hafa  lagt stund á NLP markþjálfun, ráðgjafa nám og krakka yoga kennaranám. 

Hennar helsta ástríða er móðurhlut verkið, að skrifa smásögur og ljóð, yoga og hugleiðsla, að læra nýja hluti, fræða aðra, að vinna með börnum og unglingum og aðstoða aðra að vaxa,  útivera og að vera í náttúrunni.

Sara Rós á og rekur fyrirtækið Lífsstefna sem sérhæfir sig í vöruhönnun  og fræðslu. Lífsstefna er með eflandi  vörur fyrir fólk á öllum aldri, en Sara hefur þó sérstaklega mikinn áhuga á því  að búa til vörur sem eru hugsaðar til að efla börn og unglinga á uppbyggjandi hátt. Vörur sem geta hjálpað börnum að öðlast meiri tilfinningagreind, sjálfsþekkingu og að efla sjálfstraust sitt. 

Lífsstefna er virk á samfélagsmiðlunum  Instagram, Facebook og Tik Tok þar  býr hún til fræðandi efni mest tengd  andlegri heilsu, ADHD og einhverfu.  Einnig er með grúbbu á Facebook sem  heitir Lífsstefna Krakkar og er hún  hugsuð sem vettvangur fyrir foreldra  og fólk sem vinnur með börnum og  unglingum og vilja efla þau á upp byggjandi hátt. 

Sorry, there are no products in this collection.
Recently viewed