Tveir svampar saman í pakka, einn stór og einn lítill.
Niðurbrjótanlegur svampur fyrir heimilið sem er einstaklega rakadrægur. Tilvalinn í uppvaskið og öll önnur almenn heimilisþrif.
Svampurinn er 100% plastlaus og því fara engar mikróplastagnir frá þessum út í umhverfið. Óhætt er að setja hann í heimamoltu (og iðnaðarmoltu) þegar líftíma hans lýkur þar sem innihaldsefnin koma öll úr plönturíkinu; sellulósi bómull, viðarmassi og hör.
Lítill - stærð: 100x80x25mm.
Stór - stærð: 120x80x25mm.
Framleitt í Bretlandi
Endurvinnanlegar umbúðir