VOXNA WP Kuldaskórinn frá KAVAT
Voxna frá Kavat – kuldaskór sem við treystum

Við höfum verið með Voxna kuldaskóna frá Kavat í 8 ár og þeir hafa frá upphafi verið ein af okkar vinsælustu vetrarvörum fyrir börn.
Á þessum árum höfum við fengið ótal jákvæð viðbrögð frá foreldrum, kennurum og starfsfólki leikskóla. Það sem heyrist aftur og aftur er hversu hlýir, vatnsheldir og þægilegir skórnir eru – og hversu auðvelt er fyrir börnin að fara sjálf í þá.
Margir hafa sérstaklega nefnt hversu vel Voxna heldur bleytunni úti. Eftir langa og blauta útiveru koma fæturnir þurrir og hlýir inn.
Það sem segir okkur þó mest er að sömu fjölskyldurnar koma aftur ár eftir ár og kaupa næstu stærð. Það eru bestu meðmælin.
Af hverju Voxna?
- 100% vatnsheldir með vatnsheldri himnu og innsigluðum saumum.
- Hlýir og fleecefóðraðir með lausu fleeceinnleggi.
- Léttir, mjúkir og liprir og auðvelt fyrir börnin að klæða sig sjálf í þá.
- Ytri sóli úr náttúrulegu gúmmíi sem gefur gott grip.
- Framleiddir að hluta úr endurunnum efnum.
- Án flúorkolefna.
- Má þvo í þvottavél við 30°C.
- Endingargóðir og slitsterkir og geta auðveldlega gengið áfram til næsta barns.
Athugið stærðina
Voxna eru frekar litlir í stærðum. Við mælum því alltaf með að mæla fót barnsins og skoða stærðartöfluna vel.
Gott er að velja skó sem eru um 1,5–2 cm lengri en fóturinn.
Eftir átta vetur með Voxna getum við sagt þetta með fullri vissu: Þetta er kuldaskór sem hefur sannað sig – aftur og aftur.
