Ilmkerti gert úr hreinum náttúrulegum hráefnum, úr sojavaxi, ilmkjarnaolíum og bómullarþræði.
Kertið inniheldur ilmkjarnaolíurnar sem eru best þekktar fyrir að hjálpa til við góðan nætursvefn. Slökun, jafnvægi og endurnýjun frá vinum okkar kamillu, lavender, vetiver og hið jarðtengda frankincense.
-Tilvalið sem gjöf, kertið kemur í handstimpluðu sjálfbæru endurunnu boxi.
-Búið til með vistvænu sojavaxi og bómullarþræði fyrir hreinan bruna.
Stærð: 120 ml
Brennslutími: 25 klukkustundir
Notkun:
Mælum með að kertið sé látið loga í 2 klst við fyrstu notkun, þar til vaxið bráðnar upp að brún til að brennslan verði jöfn eftir það.
Klipptu kveikinn niður í 6mm á milli notkunar.
Þegar þú hefur klárað kerti skaltu þvo krukkuna með volgu sápuvatni og endurnýta hana á heimilinu.