24 litríkir og skemmtilegir viðarpeningar sem ýta undir sköpunargleði og virkja ímyndunarafl barna. Leikfangið er hugsa fyrir opinn leik og hægt að nota á marga vegu. Börn geta dundað sér við að stafla, flokka eftir litum, telja eða hvað sem þeim dettur í hug í skapandi leik.
Stærð peninganna er 30x40x10 mm
Grimms leikföngin eru framleidd í Evrópu úr trjám sem sótt eru úr sjálfbærum skógum. Framleiðslan fer fram í sérvöldum vinnustofum víða um Evrópu og eru einungis náttúruleg litarefni notuð og flest leikföngin handpússuð sem gerir viðinn náttúrulegri. Lögð er áhersla á tímalausa hönnun sem endist lengi og erfist jafnvel á milli kynslóða. Leikföngin frá Grimms henta mjög breiðum aldri enda óteljandi möguleikar og hugmyndir sem hægt er að fá í leik með opnum efnivið eins og þau eru.
Við mælum einnig með...
Meira frá Barnavörur
Nýlega skoðað