Hársápustykkið hentar vel fyrir þurrt, litað og venjulegt hár. Með náttúrulegu Henna og morgunfrú eykur gljáa og dregur fram náttúrlega liti í rauðu og brúnu hári (mun ekki lita hárið).
Hársápustykkið er úr 100% náttúrulegum hráefnum, handgert úr lífrænum jurtaolíum, jurtum og ilmkjarnaolíum.
Þyngd: 100 gr.
Notkunarleiðbeiningar:
Nuddaðu hársápustykkinu varlega í hárið. Leggðu hársápustykkið til hliðar og nuddaðu hársvörðinn og hárið með höndunum og láttu hársápuna freyða vel. Mundu að láta freyða líka á hárendunum. Skolaðu úr.
Þegar þú byrjar að nota hársápustykki sem eru á olíugrunni þá gæti hárið þitt orðið örlítið klístrað eða feitt í fyrstu, það mun þó hverfa eftir 1-10 þvotta. Hægt er að draga úr þessum viðbrögðum með því að nota hárskolið sem hárnæringu.
Innihaldsefni:
Kókosolía*, Shea smjör*, glýserín, vatn, castor olía*, rhassoul leir, Himalaya bleikt salt, rósmarín laufþykkni*
* Vottað lífrænt ræktað hráefni