Settið inniheldur 70 viðarkubba í ýmsum stærðum og regnbogalitum. Kubbarnir eru í fimm mismunandi formum og situr hvert form í sér tréramma. Ferhyrningar, sívalningar, þríhyrningar, plötur og einingakubbar, allt í einu setti. Fullkomið til þess að byggja , í stærðfræðileiki, búa til mandölur og alls konar fleira.
Hver rammi er 31cm langur. Trékubbarnir eru mismunandi að lengd frá 1cm-8cm.
Grimms leikföngin eru framleidd í Evrópu úr trjám sem sótt eru úr sjálfbærum skógum. Framleiðslan fer fram í sérvöldum vinnustofum víða um Evrópu og eru einungis náttúruleg litarefni notuð og flest leikföngin handpússuð sem gerir viðinn náttúrulegri. Lögð er áhersla á tímalausa hönnun sem endist lengi og erfist jafnvel á milli kynslóða. Leikföngin frá Grimms henta mjög breiðum aldri enda óteljandi möguleikar og hugmyndir sem hægt er að fá í leik með opnum efnivið eins og þau eru.