{"product_id":"winter-glow-duo-gjafasett","title":"WINTER GLOW DUO - GJAFASETT","description":"\u003cp\u003eWinter Glow Duo gjafasettið er algjör lúxus fyrir húðina. Vörurnar koma í glitrandi grænni og gullinni öskju með borða úr endurunnu plasti – tilbúið til gjafa, engin fyrirhöfn! Í öskjunni finnur þú tvær vinsælar vörur frá UpCircle, en í smærri útgáfu:\u003cbr\u003ePeptide Serum (13 ml) og lífræn andlitsolía (10 ml).\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eHvort sem þú vilt gleðja vin, vinkonu eða dekra við sjálfa\/n þig, þá mun þetta sett án efa slá í gegn. Frábær leið til að fríska upp á vetrarhúðrútínuna með öflugum innihaldsefnum sem unnin eru úr endurnýttum hráefnum (e. *upcycled*). \u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003ePeptide Serumið inniheldur meðal annars efni unnin úr kirimojaldini (e. *custard apple*) og níasínamíð. Sýnt hefur verið fram á með klínískum rannsóknum að það eykur teygjanleika húðarinnar um 29% á aðeins 14 dögum, sem gerir húðina þéttari og ljómandi.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eLífræna andlitsolían er 100% náttúruleg og inniheldur kaffi- og rósaberjaolíur sem unnar eru úr hráefnum sem ganga af í matvælaframleiðslu. Hún lokar rakanum inni í húðinni, nærir hana og hjálpar til við að draga úr litabreytingum (dökkum blettum).\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eVörurnar eru húðlæknisfræðilega prófaðar, vegan, ekki prófaðar á dýrum og henta öllum húðgerðum. Settið kemur í endurvinnanlegum umbúðum sem hægt er að hengja beint upp á jólatréð.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cstrong\u003eNotkun:\u003c\/strong\u003e\u003cbr\u003e\u003cstrong\u003ePeptíð serum:\u003c\/strong\u003e\u003cbr\u003eSettu nokkra dropa á fingurgómana og nuddaðu inn í húðina. Notaðu eftir \u003ca href=\"https:\/\/ekohusid.is\/collections\/andlitshreinsar\" title=\"Andlitshreinsar náttúrulegar og hreinar snyrtivörur\" rel=\"noopener\" target=\"_blank\"\u003ehreinsun \u003c\/a\u003eog \u003ca href=\"https:\/\/ekohusid.is\/collections\/andlitsvatn\" title=\"Andlitsvatn náttúrulegar og hreinar snyrtivörur\" rel=\"noopener\" target=\"_blank\"\u003eandlitsvatn\u003c\/a\u003e, en áður en rakakrem er borið á. Við mælum með því að nota það eftir að hafa úðað andlitsvatni á andlitið til að undirbúa húðina.\u003cbr\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cstrong\u003eAndlitsolía:\u003c\/strong\u003e\u003cbr\u003eSettu nokkra dropa á fingurgómana og Nuddaðu inn í húðina. Berðu á eftir \u003ca href=\"https:\/\/ekohusid.is\/collections\/andlitskrem\" target=\"_blank\" title=\"Náttúruleg, hrein og virk andlitskrem\" rel=\"noopener\"\u003erakakrem \u003c\/a\u003eeða \u003ca href=\"https:\/\/ekohusid.is\/collections\/serum\" target=\"_blank\" title=\"Náttúruleg og hrein andlitsserum\" rel=\"noopener\"\u003eserum \u003c\/a\u003e– þar sem varan er 100% olíubundin virkar hún með því að mynda verndandi lag yfir húðina, sem lokar rakanum frá rakakreminu inni.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cstrong\u003eInnihaldslýsing:\u003c\/strong\u003e\u003cbr\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cstrong\u003eOrganic Face Oil: \u003c\/strong\u003e100% NATURAL INGREDIENTS: Helianthus Annuus Seed Oil*, Carthamus Tinctorius Seed Oil*, Simmondsia Chinensis (Jojoba) Seed Oil*, Coffea Arabica (Coffee) Seed Oil, Hippophae Rhammoides (Sea Buckthorn) Seed Oil*, Rosa Canina (Rosehip) Fruit Oil*, Rubus Idaeus (Raspberry) Seed Oil*, Citrus Aurantium Bergamia (Bergamot) Fruit Oil*, Pelargonium Graveolens (Geranium) Flower Oil*, Citrus Limonum (Lemon) Peel Oil*, Cymbopogon Martinii (Palmarosa) Oil*, Vetiveria Zizanoides (Vetiver) Root Oil*, Rosa Damascena (Rose) Flower Oil*, Calendula Officinalis (Calendula) Flower Extract*, ^Limonene, ^Geraniol, ^Linalool, ^Citronellol, ^Citral, ^Farnesol.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cstrong\u003ePeptide Face Serum:\u003c\/strong\u003e 93% NATURAL INGREDIENTS: Aqua (Water), Citrus Sinensis (Orange) Fruit Extract, Niacinamide, Pentylene Glycol, Annona Cherimola Fruit Extract, 3-O-Ethyl Ascorbic Acid, Butylene Glycol, Benzyl Alcohol, Diutan Gum,\u003cbr\u003eEthylhexylglycerin, Sodium Citrate, Potassium Sorbate, Tripeptide-1, Dextran, Phenylpropanol,\u003cbr\u003eSodium Dehydroacetate, Citric Acid, Tocopherol.\u003c\/p\u003e","brand":"UpCircle","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":46376742158471,"sku":"WGD","price":4190.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0356\/1940\/5959\/files\/Upcirclejolagjofgjafasetthreinarognatturulegarsnyrtivorur.Andlitsoliaogpeptideserumogfaceoil.WinterGlowDuo.jpg?v=1793374602","url":"https:\/\/ekohusid.is\/en\/products\/winter-glow-duo-gjafasett","provider":"EKOhúsið","version":"1.0","type":"link"}