{"product_id":"tunguskafa-ur-kopar","title":"Tunguskafa úr 100% kopar","description":"\u003cp\u003eStundum er ekki nóg að bursta tennurnar og nota tannþráð. Tungan er ein af helstu hreinsunarleiðum líkamans og þar sitja efni sem líkaminn vill losa sig við og að halda þessari leið hreinni er jafn mikilvægt og að bursta tennurnar.\u003cbr\u003eTunguhreinsun á uppruna sinn að rekja til hinnar fornu Ayurvedic fræða og hefur verið stunduð í yfir 6000 ár.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eMeð því að skafa í burtu hvítu húðina eða kaffi og reykingabletti af tungunni minnkar þú andfýlu og getur komið í veg fyrir tannholdssýkingar ofl.\u003cbr\u003eSkafan er úr 100% kopar, efni með náttúrulega sótthreinsandi eiginleika.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cstrong\u003eNotkun:\u003c\/strong\u003e\u003cbr\u003eBest er að hreinsa tunguna á morgnana eða á fastandi maga.\u003cbr\u003eTeygðu tunguna út eins langt og þú getur. Settu bogann á tungusköfunni aftast á tunguna. Skafðu fram á við og notaðu léttan þrýsting þegar þú dregur sköfuna fremst á tunguna. Skolaðu það sem kemur á sköfuna og endurtaktu um það bil 5-7 sinnum þar til allar leifar hafa verið fjarlægðar.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cstrong\u003eÞrif og umhirða:\u003c\/strong\u003e\u003cbr data-mce-fragment=\"1\"\u003eKopar oxast náttúrulega í snertingu við andrúmsloft sem getur leitt til þess að tunguskafan verður mislit eða dökk á litinn. Fylgdu þessum skrefum til að halda sköfunni sem bestri:\u003cbr\u003e1. Blandaðu 1 msk af salti saman við 240ml edik. Bættu litlu magni af hveiti út í lausnina og blandaðu þar til áferðin verður eins og deig.\u003cbr\u003e2. Settu á svæði sem eru mislit eða á alla sköfuna og láttu vera á í 15-30 mínútur.\u003cbr\u003e3. Skolaðu af með volgu vatni og pússaðu þar til þurrt\u003cbr\u003e4. Sótthreinsun (valfrjálst): Settu tungusköfuna í sjóðandi vatn í 5 mínútur. Taktu hana upp úr vatninu með töng og þurrkaðu strax. Þetta kemur í veg fyrir að koparinn oxist.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eHandhægur bómullarpoki fylgir með tungusköfunni sem er frábær til að geyma hana í og hafa tungusköfuna með í ferðalög.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e \u003c\/p\u003e","brand":"Arista Ayurveda","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":34628191977607,"sku":"BW08","price":1990.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0356\/1940\/5959\/files\/Untitleddesign-2023-10-10T175100.663.png?v=1751380641","url":"https:\/\/ekohusid.is\/en\/products\/tunguskafa-ur-kopar","provider":"EKOhúsið","version":"1.0","type":"link"}