{"product_id":"soda-kristallar-soda-crystals-450g","title":"Sóda kristallar (Soda Crystals) 450g","description":"\u003cp\u003eSóda kristallar hafa fjölmarga notkunarmöguleika, allt frá því að hreinsa bletti í að losa stíflur í lögnum. Mælt er með þessum blöndum:\u003cbr\u003eMild - 1 msk í 500 ml vatn\u003cbr\u003eVenjuleg - 1\/2 bolli í 500 ml vatn\u003cbr\u003eSterk - 1 bolli í 500 ml vatn\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cstrong\u003eHreinsaðu þvottavélina þína\u003c\/strong\u003e\u003cbr\u003eSóda kristallar geta hjálpað til við að fjarlægja kalkbletti og leifar af þvottaefni sem og fjarlægt vonda lykt. Settu einn bolla af sóda kristöllum í tóma þvottavélina og stilltu á 90°C og láttu hana þvo.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cstrong\u003eAuka virkni þvottaefnisins\u003c\/strong\u003e\u003cbr\u003eSóda kristallar hafa verið notaðir í að minnsta kosti 100 ár til þvotta. Það er því engin tilviljun að stundum er talað um \"þvottasóda\". Þeir hjálpa til við blettahreinsun og mýkja vatnið. Settu 1 msk af kristöllunum með þvottaefninu.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cstrong\u003eFjarlægja bletti úr fötum\u003c\/strong\u003e\u003cbr\u003eNotaðu sterka blöndu og láttu fötin í bleyti yfir nótt, þvoðu fötin eins og venjulega með sápuskeljum, sápuskeljadufti eða öðru þvottaefni.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cstrong\u003eMýkja handklæðin\u003c\/strong\u003e\u003cbr\u003eEf handklæðin eru orðin hörð þá getur verið að það stafi af uppsöfnuðum kalki og þvottaefnaleifum. Prófaðu að leggja handklæðin í bleyti í venjulega blöndu af sóda kristöllum og heitu vatni í ca klst. Skolaðu þau vel (má setja á skol í þvottavél) og þvoðu þau eins og venjulega ásamt 1\/2 bolla af hvítvínsediki í mýkingarefnishólfið.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cstrong\u003eFjarlægja þrjóska, brennda matarbletti á pottum og pönnum\u003c\/strong\u003e\u003cbr\u003eGerðu þykkt \"paste\" úr sóda kristöllunum og heitu vatni (mjög lítið af vatni). Settu það á blettina og leyfðu að standa yfir nótt. Nuddaðu af til að hreina, vonandi þarf mjög lítið að nudda.\u003c\/p\u003e","brand":"Living Naturally","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":34569194176647,"sku":"LN56","price":990.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0356\/1940\/5959\/products\/Soda_Crystals.jpg?v=1751380800","url":"https:\/\/ekohusid.is\/en\/products\/soda-kristallar-soda-crystals-450g","provider":"EKOhúsið","version":"1.0","type":"link"}