{"product_id":"artist-barnamyndavel-bleik","title":"Artist barnamyndavél - bleik","description":"\u003cp\u003eTaktu mynd og prentaðu hana um leið. Með Artist myndavélunum frá Hoppstar getur þú tekið mynd og haft hana útprentaða svarthvíta fyrir framan þig eftir þrjár sekúndur. Þú getur litað myndina, dáðst að henni, gefið hana áfram eða haldið upp á hana.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cspan\u003eHægt er að kaupa aukarúllur af pappír í myndavélina! \u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cspan\u003e\u003c\/span\u003eArtist myndavélarnar frá Hoppstar eru gæddar öllum þeim eiginleikum sem börn leita að. Þær eru virkilega vandaðar og fallegar. Ásamt því að taka venjulegar myndir er hægt að taka ,,selfies\" eða sjálfur og myndbönd. Það fylgir 16GB minniskort með sem getur haldið allt að 8000 myndum.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eMyndavélarnar eru í sílikon hulstri sem verndar þær og veitir öruggt hald. Sílíkon hulstrið er laust við PVC, Phtalates og BPA.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eHoppstar myndavélarnar eru með vinsæla eiginleika eins og myndaramma og filtera. Myndavélarnar bjóða því börnum upp á fjölda tækifæra til þess að efla sköpun og ljósmyndun.\u003c\/p\u003e\n\u003cul\u003e\n\u003cli\u003eSjálfvirkur fókus.\u003c\/li\u003e\n\u003cli\u003eSjálfvirk litastilling svo að myndirnar séu náttúrulegar.\u003c\/li\u003e\n\u003cli\u003eSjálfvirk ISO jöfnun.\u003c\/li\u003e\n\u003cli\u003eSjálfvirk lita leiðrétting.\u003c\/li\u003e\n\u003cli\u003eSjálfvirk birtustigs aðlögun.\u003c\/li\u003e\n\u003cli\u003eHægt er að taka myndir og myndbönd.\u003c\/li\u003e\n\u003cli\u003eFram- og bakmyndavél.\u003c\/li\u003e\n\u003cli\u003eSkynjar andlit.\u003c\/li\u003e\n\u003cli\u003eNokkur tungumál í boði.\u003c\/li\u003e\n\u003c\/ul\u003e\n\u003cp\u003eHvað er í kassanum?\u003c\/p\u003e\n\u003cul\u003e\n\u003cli\u003eMyndavél.\u003c\/li\u003e\n\u003cli\u003e3 pappírs rúllur.\u003c\/li\u003e\n\u003cli\u003e16GB minniskort.\u003c\/li\u003e\n\u003cli\u003e1x C tengi.\u003c\/li\u003e\n\u003cli\u003e1x MICRO usb tengi.\u003c\/li\u003e\n\u003cli\u003eData snúra.\u003c\/li\u003e\n\u003cli\u003eHálsól.\u003c\/li\u003e\n\u003cli\u003eLeiðbeiningar.\u003c\/li\u003e\n\u003c\/ul\u003e\n\u003cp\u003eStærð:\u003cspan\u003e 13.3 x 9.6 x 4.6 cm\u003c\/span\u003e\u003cbr\u003eÞyngd:\u003cspan\u003e \u003c\/span\u003e\u003cspan\u003e230 gr\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eMælt með frá 5 ára aldri.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cspan\u003eÞrífið myndavélina aðeins með rökum klút. Ekki skilja myndavélina eftir í beinu sólarljósi eða í of miklum hita. Haldið myndavélinni frá miklum raka, hún er ekki vatnsheld. Myndavélina má því ekki nota í vatni eða kafi. Reynið að koma í veg fyrir að missa myndavélina á hart undirlag. Myndavélina á að nota undir eftirliti fullorðinna.\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cspan\u003eEkki opna myndavélina né láta SD kort úr annarri myndavél í hana. Þar sem um raftæki er að ræða er mikilvægt að fylgst sé með og haft eftirlit varðandi skemmdir.\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cspan\u003eVottanir: CE, EN71, RoHS, CCC, MA.\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e","brand":"Hoppstar","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":46482394808455,"sku":"Artist-bleik","price":19192.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0356\/1940\/5959\/files\/Hoppstarmyndavelfyrirbornartistbleik.jpg?v=1794320094","url":"https:\/\/ekohusid.is\/en\/products\/artist-barnamyndavel-bleik","provider":"EKOhúsið","version":"1.0","type":"link"}