Boxið er úr ryðfríu stáli og lokið úr eiturefnalausu sílikoni. Stálboxið er lekahelt, heldur öllum vökva og vatni. Áhyggjulaus setur þú boxið í töskuna, bakpokann eða skjalatöskuna.
Frábært nestisbox fyrir skólabörnin. Flipinn á hornunum auðveldar gripið, boxið er því auðvelt að opna og loka fyrir allan aldur.
Boxin mega fara í uppþvottavél og í bakaraofn á meðalhita. Setijð ekki í örbylgjuofn. Lekafrítt, ryðfrítt, plastlaust og laust við BPA, þalöt og BPS.
Plastlaus og margnota leið til að geyma mat og nesti
Boxið rúmar 1180 ml.
Ef lokið er skoðað nánar þá sést munstur eða útlínur kóralrifja og er hannað til að minna okkur á hafið bláa sem nauðsynlegt er að halda hreinu og án plastmengunar.